Dagsetning:
 |
 |
 |
 |
Flóttamenn frá Lettlandi á ferð yfir Eystrasaltið með bátnum Zvejnieks (Fiskimanninum). Báturinn kom til Gotlands í Svíþjóð 25. nóvember 1944.
LJÓSMYND: Fricis Forstmanis |
 |
 |
 |
Embætti flóttamannafulltrúa Sameinuðu þjóðanna stofnað
Þegar Sameinuðu þjóðirnar leystu þjóðabandalagið af hólmi árið 1945, viðurkenndu þær frá upphafi að umsjá flóttamanna væri verkefni sem varðaði samfélag þjóðanna. Í samræmi við stofnskrá S.Þ. bæri þjóðum heims að taka sameiginlega ábyrgð á þeim sem flúðu undan ofsóknum.
|
 |
“Því aðeins er hægt að gera eitthvað stórbrotið eða göfugt hér í heimi ef við leggjumst á árar með öðrum.” – Friðþjófur Nansen.
|
 |
 |
 |
Umdæmisskrifstofa Flóttamanna-stofnunarinnar fyrir Eystrasaltsríkin og Norðurlönd hóf starfsemi sína í Stokkhólmi árið 1985.
Höfuðstöðvar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eru í Genf í Sviss.
|
 |
|
 |
 |
Meira um sama efni
(in English)
(unhcr.org/admin)
Á fyrsta starfsdegi Flóttamannastofnunarinnar, 1. janúar 1951, störfuðu 33 manns á hennar vegum, aðallega í Genf, og árlegur rekstrarkostnaður var áætlaður um 300 þús. Bandaríkjadala. Á þeirri rúmu hálfu öld sem síðan er liðin hefur starfsemin tengt anga sína um víða veröld.
António Guterres tók við embætti flóttamannafulltrúa Sameinuðu þjóðanna þann 15. júní 2005 og er hann sá 10. sem gegnir þessu embætti.
Viltu eiga viðskipti við Flóttamannastofnunina? Stofnunin kaupir vörur og þjónustu vegna verkefna sinna um víða veröld. Hér getur þú fengið frekari upplýsingar um viðskipti við stofnunina.
(unhcr.org/admin)
Óhætt er að segja að starfsfólk Flóttamannastofnunarinnar takist á við ólík og ögrandi viðfangsefni. Starfsfólk hennar sinnir allt frá sérfræðistörfum í höfuðstöðvunum í Genf til verkefna á sviði verndar, skipulagningar eða flutninga og dreifingar á hjálpargögnum á einhverjum af erfiðustu átakasvæðum í heiminum eins og t.d. í Afganistan eða í Líberíu.
|
 |
|