Home Site map Contact us Links

Basic facts
News
Protecting refugees
Om UNHCR
Special events
How can you help

donate online

Þú ert hér: Almennar staðreyndir

Dagsetning:

Strákur, sem er flóttamaður frá Angóla, stendur við tjald stuttu eftir komu í flóttamannabúðir í Nagweshi í Sambíu.
Strákur, sem er flóttamaður frá Angóla, stendur við tjald stuttu eftir komu í flóttamannabúðir í Nagweshi í Sambíu. © Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna / B. Neeleman.

Verkefni Flóttamannastofnunarinnar

UNHCR, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur verið fengið það verkefni af Sameinuðu þjóðunum að leiða og samhæfa alþjóðlegt starf til að vernda flóttamenn um allan heim og að stuðla að varanlegum lausnum á þeim vanda sem tengist flóttamönnum.

Verkefni Flóttamannastofnunarinnar er fyrst og fremst að standa vörð um réttindi flóttamanna og tryggja öryggi þeirra. Stofnunin kappkostar að allir, sem þess þurfa, geti nýtt rétt sinn til að sækja um hæli og eignast griðarstað í nýju landi.

Flóttamannastofnunin leitast við að finna varanlegar lausnir fyrir flóttamenn, sem eru í erfiðum aðstæðum, og aðstoðar þá við að snúa til baka til heimalands síns eða að setjast að í nýju landi.

Starfsreglur Flóttamannastofnunarinnar, flóttamannasamningurinn frá 1951 og bókunin frá 1967 vísa veginn í starfi stofnunarinnar.

Alþjóðlegur flóttamannaréttur er hornsteinninn í starfi Flóttamannastofnunarinnar í þágu mannúðar.  

Framkvæmdanefnd Flóttamannastofnunarinnar og allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hafa einnig falið stofnuninni að liðsinna öðrum hópum fólks en flóttamönnum. Þeirra á meðal eru fólk sem er án ríkisfangs eða er umdeilanlegt hvar hafi ríkisfang, og undir vissum kringumstæðum fólk sem hefur neyðst til að flýja heimili sín en er áfram innan landamæra heimalands síns (fólk á vergangi í eigin landi eða flóttamenn í eigin landi).

“Að tryggja rétt fólks til að sækja um hæli og finna sér öruggan griðarstað... Að vernda flóttamenn og leita varanlegra lausna”

Flóttamannastofnunin leitast við að draga úr flóttamannastraumi með því að aðstoða ríki og stofnanir við að skapa þannig aðstæður að mannréttindi séu höfð í heiðri og ágreiningur sé leystur með friðsamlegum hætti.

Þess vegna leggur Flóttamannastofnunin sig fram um að auðvelda flóttamönnum að aðlagast þegar þeir snúa til baka til heimalands síns og þannig er reynt að koma í veg fyrir að fólk leggi aftur á flótta.

Flóttamannastofnunin býður fram hlutlausa vernd fyrir alla flóttamenn og aðstoðar þá. Vernd og aðstoð fer eftir þörfum flóttamanna hverju sinni og er veitt án tillits til hvaða þjóðflokki þeir tilheyra, trúarbragða þeirra, stjórnmálaskoðana eða kynferðis. Í öllu starfi sínu hefur stofnunin þarfir barna að leiðarljósi og hún leitast við að efla réttindi kvenna og stúlkna.

Í þeirri viðleitni sinni að veita flóttamönnum vernd og leysa vanda þeirra, starfar Flóttamannastofnunin með ríkisstjórnum, stofnunum sem starfa á einstökum svæðum eða á alþjóðavísu auk frjálsra félagasamtaka.

Í starfi sínu fylgir Flóttamannastofnunin þeirri grundvallarreglu að hafa samráð við flóttamenn í öllum þeim málum sem varða þá persónulega.

Flóttamannastofnunin starfar ætíð í samræmi við grundvallarmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Að varðveita alþjóðlegan frið og öryggi, að koma á vinsamlegu sambandi á milli þjóða heims og að auka virðingu fyrir mannréttindum og grundvallarfrelsi manna.

Leit á vefsíðu UNHCR

Leit

 


Copyright 2001 - UNHCR. All Rights Reserved. Site design by Pentagram